Stjórn píludeildar Þórs kom færandi hendi til Hetjanna – félags langveikra barna á Norðurlandi – og afhenti félaginu eina milljón króna að gjöf á dögunum. Upphæðin safnaðist í góðgerðarleik sem píludeildin stóð fyrir, með stuðningi frá Skógarböðunum, Coca-Cola, Eyjabita og Tengi.
Þessi styrkur kemur sér mjög vel fyrir okkur í Hetjunum og erum við svo innilega þakklát píludeild Þórs, fyrirtækjunum og þátttakendum á mótinu.
